Í starfi leikskólans Garðasels er lögð áhersla á skapandi starf, hreyfingu og gæði í samskiptum. Í vetur var ákveðið að leggja sérstaka áherslu á hreyfingu og Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, kennari, var ráðinn sem verkefnastjóri. Hún kom að skipulagi hreyfingar í samráði við starfsfólk skólans og sá um hreyfistundir næst elstu barnanna ásamt því að skipuleggja hreyfistundir yngri barnanna.
Leikskólinn setti sér það markmið í haust að fá viðurkenningu frá Landlæknisembættinu sem heilsuleikskóli og kom Anna Björg Aradóttir, verkefnastjóri , frá embættinu í febrúar sl og tók starfið út. Í heilsuleikskóla er lögð áhersla á heilbrigði og jákvæðan aga til að efla þroska og vellíðan barna og starfsfólks ásamt góðu samstarfi við foreldra og samfélagið. . Óhætt er að segja að starfið hafi fengið afar góða úttekt og stóðst öll viðmið með glæsibrag sem höfð eru að leiðarljósi .Fimmtudaginn 10. júní sl. var síðan mikil hátíð í leikskólanum .Þá kom fulltrúi landlæknisembættis og Lýðheilsustöðvar, Anna Björg Aradóttir, og útnefndi leikskólann formlega sem Heilsuleikskólann Garðasel. Þennan dag stóð foreldrafélagið fyrir mikilli fjölskylduhátíð þar sem boðið var upp á grill fyrir börnin í leikskólanum og f´jölskyldur þeirra og var því fjölmenni sem tók á móti þessari viðurkenningu með börnum og starfsfólki skólans.