Tómstunda- og forvarnarsvið Akraneskaupstaðar framkvæmdi könnun þann 13. apríl 2004 á sölu tóbaks og áfengis til barna og unglinga undir 18 ára aldri. Á vegum sviðsins fóru unglingar á aldrinum 15 – 16 ára fram á afgreiðslu tóbaks og áfengis þar sem því var til að dreifa. Alls náði könnunin til 11 söluaðila tóbaks og 5 söluaðila áfengis. Niðurstöður þessarar könnunar á Akranesi voru ekki nógu góðar.
Við viljum í því sambandi benda á 8. gr. - laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002, sbr. lög samþykkt á Alþingi 10. mars 2003:
“Tóbak má hvorki selja né afhenda einstaklingum yngri en 18 ára. Bann þetta skal auglýst með áberandi hætti þar sem tóbak er selt. Leiki vafi á um aldur kaupandans getur sala því aðeins farið fram að hann sýni með skilríkjum fram á að hann sé orðinn 18 ára.”
Akraneskaupstaður hvetur söluaðila tóbaks og áfengis til að taka sig á, fara að lögum og brýna fyrir starfsfólki sínu að sýnd verði skilríki við sölu tóbaks ef minnsti vafi leikur á um aldur kaupandans.
Stefnt er á endurtekningu könnunarinnar við tækifæri.