ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Skrúðganga á 17. júní - breyting á dagskrá

14. júní 2012

Vegna dræmrar þátttöku í skrúðgöngum á 17. júní á undanförnum árum var sú ákvörðun tekin í ár að fella gönguna niður. Þessi ákvörðun hefur mælst misvel fyrir enda telja margir að skrúðganga sé ómissandi hluti af hátíðarhöldum á þjóðhátíðardegi. 

Því hefur verið ákveðið að draga fyrri ákvörðun til baka og efna til skrúðgöngunnar sem hefst við Íþróttamiðstöðina að Jaðarsbökkum á sunnudaginn, þann 17: júní kl. 13:30. Gengið verður um Innnesveg, Garðagrund, Þormóðsflöt og Ketilsflöt í Garðalund þar sem hátíðarhöld dagsins fara fram frá kl. 14:00 til 16:00. Upplýsingar um dagskrá á 17. júní má finna í auglýsingum sem birtust í Póstinum og Skessuhorni og einnig á vef Akraneskaupstaðar, www.akranes.is. Tilkynning um þessa dagskrárbreytingu verður borin í öll hús á Akranesi síðar í dag, fimmtudag.  

Í fararbroddi göngunnar verða að venju Skólahljómsveit Akraness, félagar úr Skátafélagi Akraness og lögreglan. 

Vonandi geta sem flestir tekið þátt í skrúðgöngunni á 17. júní!

 

Dagskrá hátíðarhalda í tilefni af 17. júní og Norðurálsmótinu á Akranesi er sem hér segir:

 

Föstudagur 15. júní

07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Opið til miðnættis.

Hoppkastalar á svæðinu neðan við Akraneshöll. Tilvalið að kíkja á stemninguna á Norðurálsmótinu um leið. 

20:00 Akranesvöllur - ÍA - ÍBV. Allir á völlinn!

Laugardagur 16. júní

07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Skálinn verður opinn til miðnættis.

Hoppkastalar á svæðinu neðan við Akraneshöll. Tilvalið að kíkja á stemninguna á Norðurálsmótinu um leið. 

10:00 – 16:00 Listasmiðja við Langasand á Norðurálsmóti

Eigum saman skemmtilega stund málum, teiknum og litum. Allt efni er á staðnum og það eina sem þarf að gera er að mæta með sköpunargleðina og hefjast handa! Aðgangur ókeypis! Fyrir alla fjölskylduna!  

10:00 – 16:00 Leikjaland við Langasand á Norðurálsmóti

Akraneskaupstaður og stelpurnar hjá „Alltaf Gaman“ bjóða gestum og gangandi í alls konar leiki fyrir alla fjölskylduna á svæðinu neðan við  Akraneshöll, við Aggapall á Jaðarsbökkum og á Langasandinum sjálfum. Settar verða upp leikjastöðvar þar sem boðið verður upp á alls konar leiki s.s. kubb,  knattþrautir, skotboltasvæði/höfðingjaleik, hornareiptog, kastleiki s.s. skeifukast, skóflur og fötur fyrir Langasand, sippibönd og snú-snúbönd, teygjutvist, krítar fyrir stéttarnar og Mikadó.  Ný og glæsileg dótakista á Aggapalli, full af flottu dóti fyrir Langasand. Öllum er frjálst að vera með og aðgangur er ókeypis!  

10:30 Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum - Kvennahlaupið

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á Akranesi mun fara fram laugardaginn 16. júní kl:10:30. 

Hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum (Þyrlupallur), upphitun er fyrir hlaup.

Kvennahlaupsbolur kostar kr. 1.250, forsala í íþróttamiðstöðinni. Hlaupin er ca 3 km leið frá þyrlupallinum á Jaðarsbökkum - Út með Jaðarsbraut - Beygt upp við Höfðabraut - Yfir Garðabraut - Á göngustíginn meðfram Þjóbraut - Beygt inn við Ketilsflöt og sem leið liggur upp í Skógrækt.

Þar fá þátttakendur verðlaunapening og boðið verður uppá Egils Kristal.

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní

10:00 - 14:00 Þjóðlegur morgunn á Safnasvæðinu

Þjóðlegar veitingar í Garðakaffi

Opið og ókeypis aðgangur í söfnin

Gestir sem mæta í þjóðbúningi fá óvæntan glaðning

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópransöngkona syngur nokkur lög kl. 10:30 og 11:30. Undirleik annast Sveinn Arnar Sæmundsson.

Boðið verður upp á andlitsmálun, ekta 17. júní blöðrur og nammi til sölu og fleira skemmtilegt. 

13:00 Safnaskálinn á Safnasvæðinu – „Leikur að litum“

Jóhanna L. Jónsdóttir sýnir olíumálverk í sýningarsalnum í Safnaskálanum.  

13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju

Sr.  Kristinn Jens Sigurþórsson messar.

Hátíðarræðu flytur Kristín Björk Lárusdóttir, nýstúdent. 

14:00 - 17:00 Kaffisala Kirkjunefndar Akraneskirkju í safnaðarheimilinu Vinaminni. 

13:30 Skrúðganga frá Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum og í Garðalund. Gengið verður um Innnesveg, Garðagrund, Þormóðsflöt og Ketilsflöt í Garðalund þar sem hátíðarhöld dagsins fara fram frá kl. 14:00 til 16:00.

14:00- 16:00 Hátíðardagskrá og fjölskylduskemmtun í Garðalundi

Fánahylling í umsjón Skátafélags Akraness. Blásarar úr Skólahljómsveit Akraness leika undir.

Ávarp Árna Múla Jónassonar, bæjarstjóra á Akranesi.

Ávarp fjallkonu – Aldís Birna Róbertsdóttir

Þjóðsöngurinn - Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona syngur, undirleik annast Sveinn Arnar Sæmundsson. 

Að lokinni hátíðardagskrá tekur við fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna í Garðalundi  - hoppkastalar, andlitsmálun, leikir og skemmtun. 

„Grease“. Nemendur í 7. bekk Brekkubæjarskóla flytja atriði úr söngleiknum Grease

Kór Grundaskóla kemur fram og syngur nokkur lög

Dansatriði frá Dansstúdíói Írisar

Hjördís Tinna Pálmadóttir sigurvegari í söngkeppni Samfés á Vesturlandi syngur

Söngleikir í Grundaskóla. Flutt verða lög úr söngleikjum Grundaskóla í gegnum tíðina en skólinn fékk nýlega viðurkenningu Heimilis og skóla fyrir þetta frábæra framtak

Dúmbó og Steini. Hljómsveitin Dúmbó og Steini kemur fram í fyrsta skipti í langan tíma í tilefni af 70 ára afmæli Akraneskaupstaðar

Kristinn Gauti Gunnarsson töframaður sýnir töfrabrögð. 

14:00 – 16:00 Garðalundur – Leikjaland!

„Alltaf Gaman“ verður með alls konar leiki fyrir alla fjölskylduna s.s. kubb, kastleiki, hreystibraut og Hornareiptog. Öllum er frjálst að vera með og aðgangur er ókeypis! 

14:00 – 16:00 Garðalundur - Listasmiðja!

Málum, litum, klippum og teiknum. Boðið verður upp á að út búa skjöld með skjaldarmerki Akraneskaupstaðar eða hátíðarmerki Akraneskaupstaðar í tilefni dagsins.  Aðgangur ókeypis! Fyrir alla fjölskylduna! 

Afmælisveisla í boði Akraneskaupstaðar!

Grillaðar pylsur og gos fyrir gesti og gangandi í tilefni af 70 ára afmæli Akraneskaupstaðar

Andlitsmálun og hoppkastalar

Skátarnir annast veitingasölu og sjá til þess að allir fái nammi og blöðru í tilefni dagsins 

Fólki er bent á bílastæði við golfvöll, á Safnasvæðinu og í nýja hverfinu við Garðalund.  

16:00 Listasetrið Kirkjuhvoll  - „Úr ýmsum áttum"

Gyða L. Jónsdóttir sýnir olíumálverk í Listasetrinu Kirkjuhvoli. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14:00 – 17:00. 

20:00 Skagarokk - Kvöldskemmtun í Garðalundi

Best of Queen! Mattías Mattíasson & Magni Ásgeirsson ásamt hljómsveit
My sweet Baklava
Klint
Jimmy Hendrix Project
Kynnir er okkar eini og sanni Hallgrímur Ólafsson, leikari
Ekta Woodstock stemning, grillið klárt ef fólk vill henda á það. 

Gleðilega Þjóðhátíð!  

Akraneskaupstaður

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008