ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Sannkallaðir menningarvitar á Breiðinni

26. mars 2012

Segja má að stóri vitinn á Breiðinni á Akranesi, sem tekinn var í notkun  árið 1946, hafi fengið nýtt hlutverk sl. laugardag þegar gestum og gangandi bauðst að fara upp í vitann og njóta hins einstaka útsýnis þaðan úr yfir Faxaflóann og raunar til allra átta. Það voru félagar úr „Vitanum“, félagi áhugaljósmyndara á Akranesi sem stóðu fyrir þessum skemmtilega viðburði en alls komu tæplega 200 gestir í vitann á laugardaginn. Mikil ánægja var með framtakið og að sögn aðstandenda voru nokkrir sem brustu í söng og hljóðfæraleik inni í vitanum, en í daglegu tali er raunar oftast talað um hann sem „nýja vitann“ til aðgreiningar frá þeim eldri, sem er frá árinu 1918 og stendur utar á sk. Suðurflös út frá Breiðinni.

Nýlega voru þau Rut Berg og Lárus Sighvatsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi í vitanum til að kanna hljómburðinn þar og má með sanni segja að vitinn hafi komið þeim á óvart sem tónleikahús því hljómburður í vitanum ku vera einstakur. Má segja að með þessu bætist við enn eitt aðdráttaraflið á þessum einstaka stað sem Breiðin er. Fjallað var um vitann og tónlistarflutning þeirra í fréttum Ríkisútvarpsins um helgina. Smellið hér til að hlusta á fréttina og þverflautuleik Rutar Berg í stóra vitanum á Breiðinni. Það var Friðþjófur Helgason sem gerði myndbandið.

 

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008