Hvað eru Skagamenn að gera í Reykjavík?
Áhugaverður fundur um tilhögun og tilgang ferða Akurnesinga til höfuðborgarsvæðisins í beinni á FM 95.0 - Útsendingin hefst kl. 20:00.
Miðvikudaginn 14. mars nk. verður haldinn kynningarfundur um niðurstöður könnunar á ferðum Akurnesinga á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins. Fundurinn verður haldinn í Tónbergi og hefst kl. 20:00. Á fundinum verða kynntar niðurstöður könnunar sem gerð var nýverið um ferðatilhögun og tilgang ferða Akurnesinga á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins.
Könnunin var unnin að frumkvæði bæjaryfirvalda á Akranesi í tengslum við þróun og uppbyggingu almenningssamgangna á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins.
Á fundinn mætir Hjördís Sigursteinsdóttir frá Rannsóknar- og þjónustumiðstöð Háskólans á Akureyri, en hún annaðist framkvæmd og úrvinnslu könnunarinnar.
Fólk er hvatt til að mæta og kynna sér niðurstöður könnunarinnar en óhætt er að segja að margt áhugavert komi þar fram. Þeir sem ekki eiga þess kost að mæta til fundarins geta hlustað á fundinn í beinni útsendingu í útvarpi á FM 95.0.
Fundarstjóri er Ingibjörg Valdimarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður Fjölskylduráðs.