Nýverið kynnti Norðurál drög að matsskýrslu fyrir stækkun á fyrirtækinu í allt að 300.000 tonna álver á Grundartanga. Fyrirtækin á Grundartanga hafa mikil áhrif á mannlíf og þróun byggðar hér á Akranesi og hreppana sunnan Skarðsheiðar. Í ljósi þess er sérstök ástæða til að vekja athygli á matsskýrslunni og hvetja bæjarbúa til að kynna sér áform fyrirtækisins um stækkunina og framtíðaruppbyggingu.Drög að matsskýrslunni eru kynnt á heimasíðu fyrirtækisins www.nordural.is til mánudagsins 21. janúar n.k.