Á fundi bæjarráðs þann 19. febrúar 2004 var eftirfarandi bókun gerð:
Í tilefni af lokatillögum meirihluta nítján manna nefndar iðnaðar- og viðskiptaráðerra mótmælir bæjarráð Akraness öllum tillögum sem leiða munu til hækkunar á raforkuverði á Akranesi. Bæjarráð tekur undir nauðsyn þess að jafna raforkuverð í landinu en telur að slíkar félagslegar aðgerðir eigi að greiðast úr ríkissjóði en ekki að leggjast þyngst á atvinnulíf og barnafjölskyldur í öðrum landshlutum. Ríkisvaldinu er í lófa lagið að jafna lífskjörin í landinu með öðrum aðgerðum en þeim að rýra búsetuskilyrði á einu svæði í þágu annars. Bæjarráð telur að flutningskerfið eigi að vera takmarkað við 132kV og hærri spennu en ekki við 66kV eins og tillögur meirihluta nítján manna nefndarinnar gera ráð fyrir.