ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Félagsstarf aldraðra í nýtt húsnæði

Samningar undirritaðir í gær

14. janúar 2002

Í gær, sunnudaginn 13. janúar, var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og Verkalýðsfélags Akraness um að Akraneskaupstaður leigi til 15 ára 3. hæðina að Kirkjubraut 40.  Um er að ræða 451 fermetra húsnæði.  Tilgangurinn er að starfrækja félagsstarf aldraðra í húsnæðinu og starfsemi á vegum Félags eldri borgara á Akranesi og í nágrenni (FEBAN).  Hluti húsnæðisins er afhentur nú, en seinni hlutinn verður afhentur á komandi sumri. Gert er ráð fyrir því að í september verði starfsemin þar komin að fullu í gang.  Um leið og leigusamningurinn var undirritaður var samhliða gengið frá samkomulagi milli Akraneskaupstaðar og FEBAN um að FEBAN hafi umsjón með hinu leigða húsnæði og annist útleigu þess.  Með þessum samningum er ákveðið að félagsstarf eldri borgara og FEBAN verði að Kirkjubraut 40 á komandi árum.  Við undirskriftina tóku m.a. til máls Gísli Gíslason bæjarstjóri, Sveinn Kristinsson, forseti bæjarstjórnar, Bjarnfríður Leósdóttir formaður FEBAN, Hervar Gunnarsson, formaður VLFA, Skúli Þórðarson og séra Björn Jónsson og lýstu allir yfir ánægju sinni með að þetta skref hafi verið stigið.

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008