ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Viðbygging á leikskólanum Vallarseli tekin í notkun

6. febrúar 2004

Fimmtudaginn 5. febrúar s.l. var ný viðbygging í leikskólanum Vallarseli tekin í

Sveinn Kristinsson afhendir Lilju lyklavöldin
notkun.  Um er að ræða tvær deildir af þremur, en sú þriðja verður tilbúin í mars 2004.  Margmenni var þegar Þráinn E. Gíslason, verktaki viðbyggingarinnar, afhenti Sveini Kristinssyni, forseta bæjarstjórnar, lyklana.   Lilja Guðlaugsdóttir, leikskólastjóri Vallarsels, tók svo við lyklunum fyrir hönd Vallarsels.   Leikskólinn Vallarsel tók fyrst til starfa í maí 1979, og var þá 2ja deilda leikskóli.  Árið 1985 var tekið í notkun 167 m2 viðbótarhúsnæði sem í þá daga var dagheimilisdeild.  Var leikskólinn þá orðinn þriggja deilda skóli, 431,0 m2 og gátu dvalist þar 66 börn samtímis.

Helga Gunnarsd. afhendir framkvæmdanefnd þakkir fyrir vel unnin störf
 Eftir að ákveðið hafði verið að hefja framkvæmdir við stækkun Vallarsels var börnum fjölgað í leikskólanum, í ágúst 2003, sem nemur einni deild.  Til þess að af því gæti orðið fékkst aðstaða fyrir elstu börn leikskólans í Grundaskóla og dvöldust þau þar meðan á byggingarframkvæmdum stóð.  Auk nýframkvæmda voru gerðar umtalsverðar breytingar á eldra húsnæði leikskólans.  Í dag er Vallarsel 6 deilda leikskóli 930,0 m2 að stærð þar sem 143 börn geta dvalið samtímis.  Stærð lóðar er 5610.0 m2.  Þegar allar deildir leikskólans hafa verið teknar í notkun verða leikskólapláss á Akranesi alls 288.  Stöðugildi við leikskólann eru í dag 26,53.  Arkitektar að eldri byggingu leikskólans voru Guðmundur Kr. Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson og hefur Guðmundur og arkitektastofan Arkþing séð um hönnun breytinga og nýbyggingar.  Framkvæmdir voru á hendi Trésmiðju Þráins E. Gíslasonar.

RÓ/RÞ
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008