Á síðasta ári var Höfðabraut 14-16 seld til Verkvíkur ehf. Nú um áramótin var blokkin afhent nýjum eigendum til umráða. Verkvík ehf. er fyrirtæki í Reykjavík í eigu Gunnars Árnasonar múrara. Fyrirtækið hefur undanfarinn áratug sérhæft sig í viðhaldi fasteigna og ætlar að endurbæta húsið, bæði utan og innan.
Fyrirhugað er að íbúðirnar verði leigðar á almennum markaði.