Síðastliðinn föstudag var Slökkviliði Akraness afhent ný slökkvibifreið. Gísli Gíslason bæjarstjóri tók við bifreiðinni af M.T. bílum Ólafsfirði. Bæjarstjóri afhenti síðan slökkviliðsstjóra, Jóhannesi K. Engilbertssyni, bifreiðina til notkunar.
Í október 2000 var gerður kaupsamningur við M.T. bíla Ólafsfirði um smíði á bifreiðinni. Kaupverð bifreiðarinnar er liðlega 15 mkr. Akraneskaupstaður rekur slökkvilið í samvinnu við hreppana sunnan Skarðsheiðar og standa sveitarfélögin öll að kaupum á bifreiðinni.
Bifreiðin er með 6 manna ökumannshúsi. Þar af eru sæti fyrir fjóra reykkafara, sem sitja í þar til gerðum sætum fyrir reykköfunartæki. Bifreiðin er sjálfskipt, með 3000 L vatnsdælu að Ziggler gerð. Auk þess eru tankar fyrir froðu- og léttvatn 300 L hvor. Í bifreiðinni er 6,48 kW 11.8 amp. 220/380 V rafall, glussadrifinn, loftdrifið ljósamastur með 3.500 W kösturum og er bifreiðin lýst upp á hliðunum með 220 V ljósum.