ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Hátíð hafsins og Sjómannadagur á Akranesi

1. júní 2011

Hin árlega „Hátíð hafsins“ verður haldin á Akranesi laugardaginn 4. júní n.k. og er dagskráin afar viðburðarík - þarna ættu því allir að geta fundið eitthvað skemmtilegt við sitt hæfi. Undirbúningur og framkvæmd hátíðarinnar er að mestu í höndum Björgunarfélags Akraness í samstarfi við Akranesstofu. Hátíðin fer að venju fram við Akraneshöfn og er dagskráin sem hér segir: 

11:00 Smábátasjómenn bjóða gestum í siglingu á meðan skipsrúm leyfir.

12:00 Grillaðar pylsur við höfnina.

13:00 Fjölbreytt skemmtidagskrá við höfnina. Ýmsir viðburðir á hafnarsvæðinu. Upplagt að rölta um og skoða lífið við höfnina.

13:00 Markaður með útivistarbúnað við höfnina. Hægt verður að leigja borð og selja notaðan viðlegubúnað.

13:30 Kaffisala slysavarnakvenna. Slysavarnadeildin Líf selur sjómannadagskaffi í húsnæði sínu, Jónsbúð.

14:30 Tónberg - Samkór Reykjavíkur heldur tónleika. Stjórnandi: John Gear. Gestakór: Kvennakórinn Ymur. Stjórnandi: Sigríður Elliðadóttir. Miðaverð kr.1000 (frítt fyrir 16 ára og yngri).

13:00 - 16:00 laugardagur og sunnudagur - Fróðá á Safnasvæðinu - Listasmiðja fyrir börn!

Aðgangur ókeypis! Málið á tréfiska og sendið sjómönnum skilaboð. Óskið sjómönnum góðs gengis með veiðina og skrifið vonir ykkar og óskir um framtíðina á fiskana. Fiskurinn fer svo í veiðinetið og sameinast þar vonum og óskum annarra barna. Föndrum saman og búum til fiska á Hátíð hafsins og sjómannadaginn. Umsjón: hugMYND myndlistarmiðstöð.

Laugardagur og sunnudagur kl. 14:00 til 18:00 Listasetrið Kirkjuhvoll

Ljósmyndasýning - Sjómennska , veiðar og vinnsla á síðustu öld. Á sýningunni eru  ljósmyndir með greinagóðum texta sem gefur okkur frekari skilning á hvernig sjómennskan, veiðar og vinnsla var á síðustu öld. Meðal annars eru myndir af skipum, bátum, áhöfnum, vinnslu í landi og  fleiru tengt sjómennsku á Akranesi á síðustu öld. Einnig eru ýmsir munir þessu tengdir á sýningunni. Sýningin er samstarfsverkefni  Ljósmyndasafns Akraness, Kirkjuhvols og Haraldarhúss og er styrkt af  Menningarráði Vesturlands. Sýningin stendur til 12. júní og er opið alla daga nema mánudaga frá kl 14:00 – 17:00. Athugið breyttan opnunartíma.

20:00 Tónberg - Karl Hallgrímssonflytur lög af nýútkomnum geisladiski í bland við eldri lög. Með Karli er landslið hljóðfæraleikara sem eru: Birgir Baldursson á slagverk, Eðvarð Rúnar Lárusson ( Eddi Lár ) á gítar, Kjartan Valdimarsson á píanó og Pálmi Gunnarssonhinn eini og sanni á kontrabassa.

Þetta er eitthvað sem enginn má missa af. Miðaverð kr. 2000. Ekki tekið við greiðslukortum.

Safnasvæðið alla helgina!

Eldsmiðir á Safnasvæðinu! Fjöldi innlendra og erlendra eldsmiða mæta á svæðið.

Sjómannadagur 5. júní

Dagskrá Sjómannadagsins verður með hefðbundnu sniði og hefst í kirkjugarði Akraness kl. 10:00 þar sem minnst verður drukknaðra sjómanna sem aldrei hafa fundist.

Kl. 11:00 verður hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju þar sem sjómenn verða heiðraðir. Prestur er Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Að messu lokinni verður gengið að "Sjómanninum", minnismerki sjómanna á Akratorgi og lagður að því blómsveigur. Merki sjómannadagsins verður til sölu á Akranesi alla helgina.

16:00 Tónberg - Smári Vífilsson flytur íslensk og ítölsk einsöngslög. Við píanóið er Bjarni Þ. Jónatansson. Miðaverð kr. 1500. Ekki tekið við greiðslukortum. 

Skagamenn eru hvattir til að taka virkan þátt í þessari skemmtilegu hátíð!

 

tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008