ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Umhverfishátíð á Akranesi laugardaginn 28. maí

25. maí 2011

Laugardaginn 28. maí verður efnt til umhverfishátíðar á Akranesi en þennan dag koma bæjarbúar saman, tína rusl og fegra opin svæði í bænum. Hátíðin hefst við Íþróttamiðstöðina að Jaðarsbökkum kl. 10:00 stundvíslega en þá verður skipað í hópa sem síðan halda af stað til hreinsunar víða um bæinn. Gert er ráð fyrir að hreinsunarherferðinni ljúki um kl. 12:00 en þá munu allir koma saman Breiðinni þar sem boðið verður upp á hressingu, grillaðar pylsur og gos. Athugið þá breytingu sem orðið hefur að átakinu lýkur á Breiðinni um hádegisbil.   

Bæjarbúar, ungir sem gamlir  eru hvattir til að taka virkan þátt í hátíðinni því mikið er í húfi. Gaman væri að sjá heilu fjölskyldurnar sameinast til verka úti um allan bæ! Framundan er viðburðaríkt sumar þar sem vænta má fjölda gesta og ferðafólks í bæinn, m.a. á Norðurálsmót og Írska daga. Öll viljum við að bærinn skarti sínu fegursta í sumar – er það ekki? 

Allar nánari upplýsingar um umhverfisdaga á Akranesi veitir Íris Reynisdóttir, garðyrkjustjóri, iris.reynisdottir@akranes.is eða í síma 433 1000.

 

tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008