Gengið hefur verið frá ráðningu Guðjóns Steindórssonar í starf verkefnastjóra í nýsköpun og eflingu atvinnumála á Akranesi. Umsóknir um stöðuna voru alls 10 en 2 umsækjendur drógu umsókn sína til baka þar sem nafnleynd kom ekki til greina.
Undanfarin ár hefur Guðjón starfað sem sjálfstæður ráðgjafi að ýmsum verkefnum m.a. á sviði fjármála og orkumála. Þá starfaði hann að þróunarverkefnum m.a. á vegum Háskólans á Akureyri og ýmissa fyrirtækja. Guðjón var um árabil útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri og hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja.
Guðjón er Akureyringur, kvæntur Ástu Hrönn Björgvinsdóttur, sjávarútvegsfræðingi og eiga þau tvö börn. Guðjón hóf störf um miðjan maímánuð og er ráðinn í atvinnu- og nýsköpunartengd verkefni til 6 mánaða m.a. skv. tillögum starfshóps um átak í atvinnu- og nýsköpunarmálum á Akranesi sem starfað hefur um nokkurra mánaða skeið undir formennsku Ingibjargar Valdimarsdóttur.
Akraneskaupstaður býður Guðjón velkominn til starfa og þakkar jafnframt öðrum umsækjendum fyrir þann áhuga sem þeir sýndu með umsóknum sínum.