Á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraness, þriðjudaginn 17. maí 2011, voru ársreikningar Akraneskaupstaðar og stofnana hans fyrir árið 2010 teknir til umfjöllunar við fyrri umræðu.
Heildartekjur í samanteknum ársreikningi voru árið 2010 alls um 4.055 m.kr. eða 122 m.kr. hærri en fjárhagsáætlun sagði til um. Rekstrarútgjöld voru 3.889 m.kr. eða 54 m kr. hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði var um 166 m kr. hagnaður á móti um 98 m.kr. í fjárhagsáætlun sem er 69 m.kr. betri afkoma.
Heildarafkoma var þannig jákvæð um 383,1 m.kr. á móti um 258,8 m.kr. í fjárhagsáætlun, eða 125 m kr. betri afkoma en endurskoðuð fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Handbært fé frá rekstri var um 579,6 m.kr., fjárfestingarhreyfingar voru nettó um 59 m.kr. og fjármögnunarhreyfingar voru um 250,1 m.kr., þar af afborganir langtímalána 281,3 m.kr. Engin langtímalán voru tekin á árinu 2010 hjá Akraneskaupstað eða stofnunum hans. Handbært fé í árslok er um 833,3. m.kr. og hafði hækkaði um 270,5 m.kr. á árinu.
Heildareignir Akraneskaupstaðar í árslok 2010 voru 11.177 m.kr. Skuldir og skuldbindingar voru samtals um 5.796 m.kr., þar af langtímaskuldir um 2.278 m.kr. og lífeyrisskuldbindingar um 2.729 m.kr. Eigið fé var í árslok um 5.380 m.kr. og hafði hækkað um 383,2 m.kr. frá árinu 2009. Eigið fé er 48,14% í heild sinni.
Síðari umræða um ársreikningana er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 31. maí nk.
Sjá ræðu bæjarstjóra.
Sjá samantekinn ársreikning Akraneskaupstaðar 2010. |