ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Saga Akraness er að koma út

14. maí 2011

Fyrstu tvö bindin af Sögu Akraness eru nú í prentun og er formlegur útgáfudagur 19. maí nk.

Saga Akraness er 1100 síður í stóru broti í tveimur bindum, prýdd fjölda mynda og korta og ber sérstaklega að geta vandaðra örnefnakorta. Þetta tímamótaverk er ótæmandi brunnur upplýsinga um hvaðeina sem snertir sögu Akraness og varpar nýju ljósi á uppruna fólks í landnámi Bresasona. Í lýsingu á þróun og uppbyggingu samfélagsins eru settar fram nýjar hugmyndir sem varða sögu landsins alls.

Fyrsta bindi Sögu Akraness spannar tímabilið frá landnámstíð til 1700. Sögusviðið er landnám Ketils og Þormóðs Bresasona. Sérstaklega ber að nefna fyrsta kafla verksins, Örnefni og búsetuminjar í landnámi Bresason, en þar er svæðinu frá Katanesi og út á Skaga, allt norðurfyrir að Stóru-Fellsöxl, lýst á einstakan hátt. Þúsundum örnefna og upplýsingum um búsetuminjar er þar haldið til haga fyrir komandi kynslóðir.

Átjándu öldinni er gerð skil í öðru bindi Sögu Akraness. Uppbygging sjávarútvegsins og sjósókn Akurnesinga myndar þar ákveðna þungamiðju enda lykilinn að þróun byggðar og mannlífs. Bindið í heild geymir yfirgripsmikla og þaulunna lýsingu á samfélagi bænda og sjómanna á átakatímum þegar sjóþorpið Akranes byggðist upp.

Í tilefni af útgáfunni verður efnt til ýmissa viðburða sem nánar verða auglýstir síðar. Nú er hægt að kaupa Sögu Akraness í forsölu en það er bókaútgáfan Uppheimar á Akranesi sem hefur umsjón með útgáfu og dreifingu hennar.

 

tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008