ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Helga Rún Guðmundsdóttir ráðin til Upplýsingamiðstöðvarinnar á Akranesi

5. maí 2011

Gengið hefur verið frá ráðningu Helgu Rúnar Guðmundsdóttur í starf við Upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk og verkefni er tengjast ferðaþjónustu á Akranesi og var hún valin úr hópi 10 umsækjenda um starfið.

Starfshópur um ferðaþjónustu á Akranesi, sem skipaður var sl. vetur, lagði á það áherslu að starfsemi upplýsingamiðstöðvar og upplýsingagjöf fyrir gesti og ferðafólk yrði efld og að ráðin yrði sérstakur starfsmaður til að sinna þessum verkefnum, en ráðið er í starfið til 6 mánaða. Að þeim tíma loknum verður reynslan af verkefninu metin og ákvörðun tekin um framhaldið. Helga Rún mun einnig koma að ýmis konar verkefnum er tengjast uppbyggingu ferðaþjónustu á Akranesi og taka þátt í skipulagningu og undirbúningi viðburða, m.a. í samstarfi við fyrirtæki og hagsmunaaðila í bænum.

Áætlað er að Helga Rún komi til starfa um miðjan maímánuð en upplýsingamiðstöðin verður staðsett í „Skagamollinu“ við Kirkjubraut.

Akraneskaupstaður býður Helgu Rún velkomna til starfa og þakkar jafnframt  öðrum umsækjendum fyrir þann áhuga sem þeir sýndu með umsóknum sínum.    

 

tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008