Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum þann 12. apríl s.l. endurskoðun fjárhagsáætlunar kaupstaðarins fyrir árið 2011. Nauðsynlegt reyndist að taka fjárhagsáætlunina til endurskoðunar þar sem eigendur Orkuveitu Reykjavíkur, sem eru sveitarfélögin Akraneskaupstaður, Reykjavíkurborg og Borgarbyggð, þurftu að veita fyrirtækinu lán í samræmi við fjölþætta aðgerðaáætlun um eflingu fyrirtækisins en það hefur eins og kunnugt er glímt við erfiðan fjármögnunarvanda. Akraneskaupstaður mun á árinu 2011 lána OR um 442 milljónir króna og á árinu 2013 um 221 milljón króna. Um er að ræða lán til 15 ára.
Samhliða þessu hefur reynst nauðsynlegt að gera nokkrar aðrar breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2011 sem bæjarráð og bæjarstjórn voru áður búin að samþykkja og er nú gengið frá með formlegum hætti. Nánari skýringar við endurskoðun fjárhagsáætlunarinnar má finna í meðfylgjandi ræðu bæjarstjóra sem lesa má með því að smella hér.