Álagningarseðlar fasteignagjalda á Akranesi árið 2011 hafa verið sendir til eigenda fasteigna á Akranesi. Akraneskaupstaður annast álagningu á fasteignaskatti, lóðarleigu og sorphirðugjaldi en Landsbanki Íslands annast innheimtu sömu gjalda samkvæmt samningi við Akraneskaupstað.
Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári, fá einnig lækkun á árinu 2011 ef þeir uppfylla skilyrði reglna um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2009. Þegar álagning vegna tekna ársins 2010 liggur fyrir næsta haust, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega.
Akraneskaupstaður framkvæmir breytingar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi eigi lögheimili á Akranesi og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Bæjarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2011 verði eftirfarandi:
Hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 2.181.000 er 100% niðurfelling á fasteignaskatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 3.020.000.
Hjá hjónum/sambýlingum með tekjur allt að kr. 3.055.000 er 100% niðurfelling á fasteignaskatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.228.000.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, Reykjavík annast álagningu og innheimtu vatnsgjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.
Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, veitir upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts, lóðarleigu og sorphirðugjalds og breytingar á þeim í síma 433 1000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið akranes@akranes.is.
Gjaldddagar fasteignagjalda umfram kr. 10.000 fyrir árið 2011 eru:
15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september, 15. október. Gjalddagi fasteignagjalda undir kr. 10.000 er 15. apríl.
Á útgáfu greiðsluseðla með gjalddaga fasteignagjalda í janúar 2011 vantar upplýsingar um fastanúmer fasteignar, götuheiti og númer.
Unnið er að lagfæringu á þessum ágöllum, sem við væntum að verði komið í lag við næstu útgáfu greiðsluseðla.
Um leið og við biðjumst velvirðingar á þessum ágöllum viljum við benda þeim sem óska eftir frekari upplýsingum vegna greiðsluseðla fasteignagjalda að hafa samband við fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar í síma 433 1000.
Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar
|