Hanna Þóra Guðbrandsdóttir er bæjarlistamaður Akraness árið 2011, en stjórn Akranesstofu samþykkti útnefningu hennar í desember sl. og var sú útnefning staðfest af bæjarstjórn Akraness skömmu fyrir áramótin. Hanna Þóra hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir sönghæfileika sína auk þess sem hún hefur starfað með öðru söngfólki, ekki síst af yngri kynslóðinni. Hanna Þóra hefur m.a. verið virkur þátttakandi í mörgum viðburðum og hátíðum á vegum Akraneskaupstaðar, nú síðast á Vökudögum í lok október á síðasta ári þar sem hún hélt tónleika fyrir fullu húsi í Gamla Kaupfélaginu við Kirkjubraut við frábærar undirtektir gesta.
Hanna Þóra er fædd og uppalin á Akranesi. Hún hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akranesi árið 1996. Haustið 1999 innritaðist hún í Söngskólann í Reykjavík og hafa kennarar hennar þar verið Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Signý Sæmundsdóttir og Kolbrún Sæmundsdóttir. Þaðan lauk hún 8. stigsprófi vorið 2005. Hanna hefur stundað framhaldsnám undir handleiðslu Signýjar Sæmundsdóttur og Vilhelmínu Ólafsdóttir. Hún hefur sótt meistaranámskeið og söngtíma hjá ýmsum kennurum m.a. Krisjáni Jóhannsyni, André Orlowitz, Lauru Brooks Rice, Janet Williams, Kristni Sigmundssyni og Jónasi Ingimundarsyni. Hanna Þóra hefur sungið ýmis óperuhlutverk og má þar nefna hlutverk Greifynjunnar í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart og hlutverk Fiordiligi í Cosí fan tutte eftir Mozart, en það hlutverk söng hún hjá óperustúdíói Íslensku Óperunnar vorið 2008.
Sumarið 2008 var Hanna Þóra valin til þess að syngja í Internationaler Hans Gabor Belvedere Competiton, en það er ein stærsta keppni í heimi fyrir unga og upprennandi óperusöngvara. Hún hefur sungið sem einsöngvari m.a. með karlakórnum Fóstbræðrum og kvennakórnum Vox feminae. Hanna Þóra hefur haldið allnokkra tónleika, m.a. tvenna tónleika til styrktar veiku barni. Hún er meðlimur lítils sönghóps sem var stofnaður haustið 2009 og kalla þær sig Tríó Blond en hann samanstendur af tveimur sópransöngkonum og einni mezzósópransöngskonu. Þær hafa haldið tvenna tónleika saman og koma einnig fram við ýmistækifæri. Gaman er að segja frá því að Hanna Þóra hefur hlotið nokkra styrki sem hugsaðir eru til frekara náms eða tónleikahalds.
Þessa dagana er Hanna Þóra að syngja hjá íslensku óperunni en um er að ræða verkefnið „Ungir óperusöngvarar“ þar sem ungir söngvarar koma fram einu sinni í mánuði á hádegistónleikum ásamt gestasöngvara af eldri kynslóðinni. Tónleikar Hönnu Þóru verða þriðjudaginn 25. janúar nk. og verður gestasöngvarinn Snorri Wium.