Nú í vikunni verður staða bæjarstjóra á Akranesi auglýst til umsóknar en umsjón með ráðningunni hefur fyrirtækið Capacent. Stefnt er að því að nýr bæjarstjóri hefji störf frá og með 1. ágúst nk. Samkvæmt V. kafla samþykkta um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp annast forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs staðgengilsstörf fyrir bæjarstjóra í fjarveru hans. Sveinn Kristinsson, forseti bæjarstjórnar Akraness, verður talsmaður bæjarstjórnar út á við þar til nýr bæjarstjóri tekur til starfa hjá Akraneskaupstað.
Á síðasta fundi bæjarráðs Akraness hinn 18. júní sl. var ákveðið að fela Jóni Pálma Pálssyni, framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu að annast framkvæmdastjórn daglegra mála Akraneskaupstaðar sbr. V. kafla samþykkta um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar, tímabilið 15. júní 2010 til 1. ágúst 2010, samhliða starfi sínu, eða þar til framkvæmdastjóri verður ráðinn til sveitarfélagsins og kemur til starfa hjá Akraneskaupstað.