ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Skemmdarverk við Langasand

25. maí 2010

Í veðurblíðunni um liðna helgi lagði fjöldi fólks leið sína á Langasand til að njóta þar sólar og útiveru og var þar mikið líf og fjör um alla helgina. Það vakti athygli fólksins sem sótti á Langasand að snyrtingarnar sem eru við sandinn voru lokaðar og fengu starfsmenn Akraneskaupstaðar m.a. ábendingar um þetta, enda bagalegt að hafa ekki aðgang að þessari nauðsynlegu þjónustu við sandinn. Auk þess var Íþróttamiðstöðin lokuð bæði sunnudag og mánudag svo ekki gat fólk leitað þangað.

Skýringin á þessari óvæntu lokun er sú að sl. föstudagskvöld voru unnin umtalsverð skemmdarverk á umræddum salernum – allt var lagt í rúst og tilraun gerð til íkveikju. Það varð því að loka snyrtingunum þar sem ekki var hægt að fá neinn til viðgerða og raunar var aðkoman slík að ekki var hægt að bregðast við þrátt fyrir góðan vilja.

Vissulega kom þetta sér illa – eins og áður hefur komið fram – og ber að biðja allt það góða fólk sem lenti í erfiðleikum vegna þessa afsökunar á hugsanlegum óþægindum.

Hins vegar er þess óskað að allir þeir sem hugsanlega urðu varir við þá sem frömdu umrætt skemmdarverk tilkynni um það til Akraneskaupstaðar og lögreglu. Því miður er þetta ekki í fyrsta skiptið sem vanstilltir einstaklingar valda skemmdum á umræddum snyrtingum; það er raunar of algengt og er það miður. Ekki eru margir mánuðir síðan að postulínssalerni var stolið af snyrtingunum við Garðalund svo það er greinilegt að fólk er tilbúið til að leggja ýmislegt á sig, jafnt skemmdarvargar sem þjófar; þetta mun heita „einbeittur brotavilji“ á opinberu máli.

Það ætti því að vera sameiginlegt verkefni allra Skagamanna að fylgjast með svona löguðu og láta vita ef einhver verður vitni að skemmdarverkum á eigum Akraneskaupstaðar - og um leið bæjarbúa.

 

tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008