Opnun tilboða í útboðsverkið "Sorphirða á Akranesi, í Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppi".
Þriðjudaginn 4. maí kl. 11:00 voru opnuð tilboð í sorphirðu í fyrrgreindum sveitarfélögum.
Fjögur tilboð bárust í verkið og eru þau sem hér segir:
1 Íslenska Gámafélagið ehf kr. 496.074.584,-
2 Vélamiðstöðin ehf kr. 532.115.824,-
3 AK flutningar ehf kr. 595.764.455,-
4 Gámaþjónusta Vesturlands ehf kr. 602.903.526,-
Verktími í útboðinu er 5 ár og tilboðsfjárhæðirnar eru samtölur vegna allra sveitarfélaganna. Nú er unnið að úrvinnslu tilboðanna og að því loknu munu sveitarstjórnirnar taka málið til afgreiðslu en nýr verksamningur á að taka gildi 1. júlí n.k.