ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Söfn og sýningar :: Listasetrið Kirkjuhvoll
Prenta vefsíðu

Listasetrið Kirkjuhvoll

Listasetrið Kirkjuhvoll stendur við Merkurteig á Akranesi en Kirkjuhvoll varðveitir m.a. listaverkasafn Akraneskaupstaðar. Kirkjuhvoll á sér langa og merka sögu. Húsið þjónaði lengst af sem prestsetur fyrir Akranessókn, en þar bjuggu prestar allt fram til ársins 1978 og á tímabili var þar heimavist nemenda við Fjölbrautaskóla Vesturlands.  Árið 1985 var svo komið að húsið var ekki lengur talið íbúðarhæft og lá beint við að það yrði rifið en það varð Kirkjuhvoli til bjargar að húsið komst í einkaeigu og var gert upp nánast í upprunalegri mynd. Frumkvöðullinn Séra Jón M. Guðjónsson, sem lengi þjónaði sem sóknarprestur á Akranesi átti sér þann draum að stofnað yrði listasafn að Görðum á Akranesi. Jón lést árið 1994 og var stofnaður sérstakur sjóður í minningu hans sem síðar keypti Kirkjuhvol með stuðningi Akraneskaupstaðar. Þar var stofnað listasetur sem hóf starfsemi í janúar árið 1995. Um leið má segja að náðst hafi mikilvægur áfangi að draumsýn séra Jóns um listasafnið að Görðum.

Í Kirkjuhvoli eru reglulega haldnar sýningar auk þess sem húsið er leigt undir mótttökur, veislur og önnur einkasamkvæmi, enda er aðstað þar fyrsta flokks. Í Kirkjuhvoli er varðveitt listaverkasafn Akraneskaupstaðar, þar fer fram umsjón með skráningu þess og annað eftirlit með hinum fjölmörgu listaverkum bæjarins.

Sjá nánari upplýsingar á vef listaseturins Kirkjuhvols, www.listasetur.is

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008