ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Söfn og sýningar :: Bókasafn Akraness
Prenta vefsíðu

Bókasafn Akraness

Bókasafn Akraness flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði að Dalbraut 1 þann 1. október 2009, en áður hafði starfsemin verið að Heiðarbraut 40 eða allt frá árinu 1972. Bókasafnið á rætur að rekja til lestrarfélags sem stofnað var á Akranesi árið 1864. Safnið er vinsæll staður barna og fullorðinna og sífellt færist í vöxt að gestir og ferðamenn heimsæki safnið sér til fróðleiks og ánægju. Í safninu er fjölbreytt úrval bóka fyrir alla aldurshópa.  Bækurnar eru bæði skáldrit og fræðibækur, flestar á íslensku en einnig nokkuð á erlendum tungumálum.

Afgreiðslutími:

Opið alla virka daga kl. 10:00 til 18:00.

Námsver safnsins, Svöfusalur er opinn á afgreiðslutíma safnsins.

Nemendur geta fengið afnot af Svöfusal, fyrir utan afgreiðslutíma safnsins. Nánari upplýsingar veittar í afgreiðslu safnsins.

Nánari upplýsingar um Bókasafn Akraness og starfsemi þess má finna á vefsíðu safnsins. 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008