Akranes – viðburðaríkur staður!
Á Akranesi er alltaf eitthvað að gerast. Hver viðburðurinn rekur annan og reyndar er það svo að fáir dagar líða án þess að eitthvað sé ekki í gangi á sviði menningar, lista eða íþrótta. Á Akranesi er öflugt menningarstarf og reglulega eru haldnir tónleikar, ýmist á vegum einhvers hinna fjölmörgu kóra sem starfandi eru eða einleiks eða einsöngs efnilegra listamanna.
Á Akranesi er mikil áhersla lögð á margvíslega menningarviðburði, bæði til að gera heimamönnum dagamun en líka til að laða að gesti og ferðamenn. Í byrjun júní er blásið til Hátíðar hafsins, daginn fyrir Sjómannadag og þá er vettvangur hátíðahalda hafnarsvæðið. Mikill metnaður er lagður í hátíðahöld Þjóðhátíðardagsins 17. júní á Akranesi og nokkrum dögum síðar halda Skagamenn eitt stærsta íþróttamót sem haldið er á Íslandi, þ.e. hið s.k. Skagamót hinna yngstu á knattspyrnuvellinum. Aðra helgi júlímánaðar halda Skagamenn Írska daga hátíðlega með götugrillum og bryggjuböllum. Í byrjun nóvember ár hvert er menningarhátíðin Vökudagar síðan haldin.
Íþróttalífið á Akranesi er landsfrægt, ekki aðeins knattspyrnan heldur er margt fræknasta sundfólk landsins frá Akranesi. Nánast daglega er keppt í einhverri íþrótt á Akranesi. Á sumrin eru haldin fjöldamörg golfmót, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna golfara og er óhætt að segja að starfsemi Golfklúbbsins Leynis sé afar öflugt og viðburðaríkt. Kynntu þér málið betur á upplýsingavef golfklúbbsins.
Safnasvæðið að Görðum er vettvangur hinnar svokölluðu viðburðaveislu þar sem kennir ýmissa grasa; kleinumeistaramót, sveitarómantík, Sjávardagur, Markaðsdagur og svo mætti lengi telja. Ef þú vilt kynna þér betur það sem Safnasvæðið hefur upp á að bjóða skaltu smella hér.
Kynntu þér vel það sem Akranes hefur upp á að bjóða – þú finnur áreiðanlega eitthvað við þitt hæfi!