Skagaleikflokkurinn var stofnaður árið 1974 en fram til þess tíma hafði Leikfélag Akraness haldið uppi öflugu starfi, sem reyndar átti undir högg að sækja með tilkomu sjónvarpsútsendinga á sjöunda áratug síðustu aldar. Skagaleikflokkurinn hefur í gegnum tíðina sett upp margar metnaðarfullar sýningar og tekið virkan þátt í ýmsum viðburðum á Akranesi. Nægir þar að nefna hið litglaða götuleikhús sem alltaf er áberandi á Írskum dögum á Akranesi.