Menningarlíf í miklum blóma
Í blómlegum bæ er mikilvægt að menningarlíf sé öflugt og fjölskrúðugt þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Menning er að margra mati hornsteinn hvers sveitarfélags; íbúar sækja í listviðburði og hverskonar félagastarfsemi til að auðga líf sitt og fá útrás fyrir sköpunarþörf. Á Akranesi er öflugt menningarlíf, ekki síst á sviði tónlistar. Í Tónlistarskólanum á Akranesi fer fram kröftugt og fjölbreytt starf og fjölmargir Skagamenn syngja með kórum eða spila með hljómsveitum. Í listasetrinu Kirkjuhvoli eru reglulega haldnar sýningar og víða um bæinn má sækja listviðburði af ýmsum toga. Í nóvemberbyrjun ár hvert er haldin mikil menningarhátíð á Akranesi, Vökudagar, þar sem Skagamenn og gestir njóta alls hins besta sem listafólkið í bænum hefur að bjóða auk þess sem fjölmargir listamenn aðrir leggja leið sína á Skagann til að taka þátt í þessari mögnuðu hátíð.
Kynntu þér menningarlífið á Akranesi!