ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?

Hátíð hafsins

Sú hefð hefur skapast að halda hina sk. Hátíð hafsins laugardaginn fyrir Sjómannadag, en hátíðin er haldin í samstarfi við Faxaflóahafnir og fleiri aðila. Sambærileg hátíðahöld fara fram á sama tíma í Reykjavík. Vettvangur hátíðarinnar er einkum hafnarsvæðið á Akranesi og Safnasvæðið að Görðum, og er gestum jafnan boðið upp á fjölbreytta dagskrá, tónlist, markaðsstemningu og hefðbundnar "Sjómannadagsíþróttir"; stakkasund, koddaslag o.fl. Fastur liður í hátíðahöldum dagsins er heimsókn Sæbjargar, skólaskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem um árabil þjónaði Skagamönnum í siglingum á milli Reykjavíkur og Akraness sem hin eina og sanna Akraborg. Heimsókn þessarar gömlu vinkonu allra Skagamanna hefur alltaf snert streng í brjóstum Skagamanna og svo verður vonandi áfram um ókomin ár. Þá hefur Björgunarfélag Akraness verið afar áberandi í dagskrá hátíðarinnar, enda má segja að þetta sé ekki síður "þeirra" dagur.

Undirbúningur Hátíðar hafsins hefst á vordögum ár hvert og er ástæða til að hvetja alla til að taka virkan þátt í hátíðinni, sem skipulögð er af Markaðsskrifstofu Akraneskaupstaðar í samstarfi við Björgunarfélag Akraness o.fl. 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008