11. júní 2008

Lúðrasveitaræfing

Minni á lúðrasveitaræfingu annað kvöld / í kvöld fimmtudag kl. 19:30

5. júní 2008

BREYTTUR ÆFINGATÍMI

Æfingin sem átti að vera næsta þriðjudag (10.6.) færist á fimmtudaginn 12.6. kl. 19:30 
Munið 1. maí nóturnar!

2. júní 2008

17. júní

Jæja, þá er all verulega farið að síga á seinni hlutann á þessu starfsári. 17. júní framundan og svo er komið frí:)
Það er ekki æfing annað kvöld (3.6.). Rut Berg og Daníel, tónlistarkennari í Mosfellsbæ, ætla að stjórna 17. júní og það verða æfingar þriðjudaginn 10.6. kl. 19:30 (hálf-átta!) og mánudaginn 16.6. kl. 19:30. Mætið með nóturnar frá 1. maí ef þið eruð með þær. Spilamennskan á sautjándanum er svo líklega um kl. 14 eins og venjulega.
Ég ætla að reyna að vera eitthvað á vappinu í kringum þetta, en annars óska ég ykkur bara gleðilegs sumars og þakka fyrir frábært samstarf!! Að öllum líkindum kemur svo nýr hornleikari í sveitina í haust...

Kveðja,
Anna

30. maí 2008

Spilamennska á morgun

Nokkrir punktar fyrir morgundaginn:

Mæting niðri við Hafnarhús kl. 12:30
Klædd eftir veðri, muna eftir statífi, þvottaklemmum, nótum og hljóðfæri! 

Lagalisti:

Íslands hrafnistu menn

(Fallbyssuskot)

Suðurnesjamenn
Sjómannavals
Á Sprengisandi
Reykjavíkurlög

Sjáumst hress!

26. maí 2008

Pásan búin ...

Lúðrasveitaræfingar í vikunni:

þriðjudagur 27.5. kl. 18:30-21:00
fimmtudagur 29.5. kl. 18:30-21:00

Allir verða að mæta!

14. maí 2008

Hátíð hafsins - MJÖG mikilvægt!

Í næstu viku er frí hjá okkur, því skólinn er upptekinn. Það er gríðarlega mikilvægt að þið æfið lögin fyrir Hátíð hafsins heima, því eins og þið tókuð eftir í gær vantar nokkuð upp á að þau séu tilbúin.
Æfingar (algjör skyldumæting!) í síðustu vikunni í maí:

þriðjudagur 27.5. kl. 18:30 - 21:00
fimmtudagur 29.5. kl. 18:30 - 21:00

Ég læt ykkur vita tímasetninguna á spilamennskunni 31.5. um leið og ég veit hana (að öllum líkindum öðru hvoru megin við hádegið).

==============================

Í gær hlutu nokkrir hljóðfæraleikarar viðurkenningu fyrir frábæra mætingu í vetur: Inga Sara, Kristján Alexander,  Berglind og Kalli voru öll með 95% mætingu, Birgir missti bara af einni æfingu  í allan vetur og Birna Björk var með ótrúlega 100% mætingu!! Þessi fengu viðurkenningaskjal í gær og eiga von á einhverjum glaðningi til viðbótar á næstunni.

Að lokum langar mig að benda ykkur á þrjá merkilega atburði í tónlistarlífinu:

Hann Birgir "okkar" heldur framhaldsprófstónleikana sína nk. laugardag (17. maí) kl. 17:00 í Borgarneskirkju. Hvernig væri að fá sér bíltúr í Nesið, fara í sund, hlusta á flotta tónleika og gæða sér svo á ís í Hyrnunni:)

Hann Halldór "okkar" er í hljómsveit sem flytur tónlist úr Commitments nk. föstudag (16. maí) kl. 20:30 í Tónbergi, miðaverð kr. 2000

Dagana 18.-22. júní verður haldin hér á landi Norræna hornhátíðin. Hér er sannkallaður stórviðburður á ferðinni, námskeið og tónleikar á heimsmælikvarða. Endilega hafið samband við mig ef þið viljið fá nánari upplýsingar, heimasíða hátíðarinnar er http://www.nordhornfest2008.com 

Kveðja,
Anna

7. maí 2008

Breytt dagskrá vorsins

Æfingin í gærkvöldi var líklega síðasta æfingin undir minni stjórn - af heilsufarsástæðum verð ég því miður að blása sjómannadagstónleikana okkar af.
Við höldum okkur þó við spilamennskuna á Hátíð hafsins (31. maí), en þar ætlar Lárus að halda um sprotann. Lagalistinn er eftirfarandi:

- Á Sprengisandi
- Rímnadanslög (kannski ...)
- Reykjavíkurlög
- Íslands hrafnistu menn
- Suðurnesjamenn
- Sjómannavals

Það verður æfing á venjulegum tíma næsta þriðjudag (13.5.), frí 20. 5. og svo æfing 27.5. 
Þar sem við höfum lítinn tíma til samæfinga, bið ég ykkur að kíkja sjálf á lögin og æfa!

Bestu kveðjur,
Anna