Eftir landsmót
Takk fyrir síðast, landsmótsfarar, þetta var rosalega gaman - ég vitna bara í einn þátttakanda: "Mig langar bara að segja eitt um þetta landsmót: það var alltof stutt!" Það var frábær reynsla að kynnast þessum stjórnendum (og æfa sig í enskunni;) og spila í stórum hljómsveitum með krökkum alls staðar að, sérstaklega held ég að slagverksleikararnir hafi upplifað eitthvað nýtt með honum Mr. Hannum, atriðið þeirra var a.m.k. alveg frábært.
En það þýðir ekkert að halla sér aftur með tærnar upp í loft núna, við þurfum að leggjast öll á eitt til þess að gera latin-tónleikana okkar sem flottasta. Baldur, slagverkskennari í Grundarfirði, ætlar að mæta með nokkra lærisveina á æfinguna hjá okkur þann 4. mars og við spilum fyrir þá öll latin-lögin. Af því tilefni frestum við kaffiæfingunni sem flauturnar áttu að sjá um næsta þriðjudag þangað til þá. Sem sagt: næsta þriðjudag er venjuleg æfing (til kl. 20:30), 4. mars kaffiæfing með tónleikasniði (til kl. 21:00).
Ég er búin að setja dagsetningar tengdar latin-verkefninu inn á dagatalið hér til hliðar.
Spörum okkur óþarfa aukaæfingar og mætum ÖLL ALLTAF á þriðjudagsæfingarnar!
Anna

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim