Landsmót SÍSL
Nú styttist all verulega í landsmótið í Reykjanesbæ (15.-17. feb.). Í síðasta lagi annað kvöld þarf ég að fá endanleg svör um þátttöku, mér þætti gott að fá tölvupóst frá foreldrum grunnskólabarna svo allt sé á hreinu. Þeir sem eldri eru láta mig vita í síðasta lagi á æfingunni annað kvöld.
Ef 1 - 2 foreldrar gætu hugsað sér að koma með sem fararstjórar, þá væri það mjög vel þegið, þar sem þetta er svona stutt að fara gæti fólk jafnvel skipt með sér helginni.
Ég minni á að það er kaffiæfing á morgun (klarinettin sjá um það), þ.e. æfingin er til kl. 21:00.
Kveðja,
Anna

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim