Fara í efni  

Myndlistarsýning á Bókasafni Akraness

Þorvaldur og móðir hans Ásdís Vala Óskarsdóttir.
Þorvaldur og móðir hans Ásdís Vala Óskarsdóttir.

Þorvaldur ásamt starfsfólki frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, þar sem hann vann í sumar. Þann 28. ágúst sl. opnaði Þorvaldur Arnar Guðmundsson myndlistarsýningu á Bókasafni Akraness. Þorvaldur Arnar hefur teiknað og málað frá barnsaldri og verið undir áhrifum frá japanskri teiknimyndahefð en þróað með sér mjög persónulegan stíl. Myndefni hefur hann m.a. sótt í goðafræði sem hann hefur hrifist mjög af. Hann útskrifaðist af starfsbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á þessu ári og hefur nám í Myndlistaskóla Reykjavíkur (einn af tólf nemendum) nú í haust. Þorvaldur Arnar hefur notið hefðbundinnar myndlistarkennslu í Grundaskóla og Fjölbrautaskólanum, auk þess sem hann hefur notið leiðsagnar Hrannar Eggertsdóttur myndlistarkennara í nokkur ár.

Sýningin er opin á opnunartímum safnsins til 21. september. Allir velkomnir, heitt á könnunni. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00