Fara í efni  

Ljósmyndasýning Marc Koegel í Akranesvita

Marc Koegel, Hilmar Sigvaldason og Hajó Koegel faðir Marc. Ljósmyndari: Björn Lúðvíksson.
Marc Koegel, Hilmar Sigvaldason og Hajó Koegel faðir Marc. Ljósmyndari: Björn Lúðvíksson.

Laugardaginn 17. september síðastliðinn var opnuð ljósmyndasýning í Akranesvita eftir ljósmyndarann Marc Koegel. Marc er fæddur í Þýskalandi en hefur verið búsettur í Vancouver í Kanada síðan 1996. Hann hefur staðið fyrir fjölmörgum ljósmyndasýningum víðsvegar um heiminn auk þess að standa fyrir námsferðum til fjölmargra landa, þar á meðal Íslandi þar sem hann hefur kennt ljósmyndun.

Fyrstu kynni Marc af Akranesi var árið 2012 þegar hann kom til að taka myndir af gamla vitanum á Akranesi. Hann fékk leiðsögn um Akranesvita af Hilmari Sigvaldasyni og er nú reglulegur gestur í Akranesvita þegar hann er á landinu.  

Við opnun sýningarinnar færði Marc Akranesvita ljósmynd  (sem er í bakgrunni á myndinni) og færir Akraneskaupstaður Marc kærar þakkir fyrir myndina. 

Sýning Marc sem er sölusýning stendur til 30. nóvember.

Við minnum á að Akranesviti er opinn þriðjudaga til laugardaga frá kl. 11-17.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00