Fara í efni  

Laus staða í búsetuþjónustu fatlaðra

Akrafjall.
Akrafjall.

Búsetuþjónusta Akraneskaupstaðar óskar eftir að ráða starfsmann í vaktavinnu í 52% stöðu. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.  

Um er að ræða krefjandi starf og er æskilegt að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á málefnum fólks með fötlun. Umsækjandi þarf að geta skilað sakavottorði. Krafist er skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða og færni í mannlegum samskiptum. 

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um skriflega í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Svala Ýr Smáradóttir í tölvupósti, svala.yr.smaradottir@akranes.is eða í síma 433-1366 milli kl. 8-16 alla virka daga.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00