Fara í efni  

Álagning fasteignagjalda ársins 2015

Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2015 er nú lokið. Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga verða póstlagðir næstu daga. Akraneskaupstaður annast álagningu á fasteignaskatti, lóðarleigu og sorphirðugjaldi en Landsbanki Íslands annast innheimtu með sama hætti og áður.

Álagningarseðlar verða sendir til íbúðareigenda fæddra 1947 og eldri en aðrir geta nálgast þá á vef island.is. Til að skrá aðgang þarf að nota Íslykil eða nota rafræn skilríki.  

  1. Velja skal efst til hægri á vefsíðunni: ,,mínar síður" og ,,innskrá"
  2. Þegar komið er inn á ,,þína síðu" birtist pósthólf þar sem smellt er á ,,skjöl frá opinberum aðilum"  en þar birtist álagningarseðil 2015.

Þeir sem óska geta fengið álagningarseðil sendan í tölvupósti eða bréfpósti og er þeim bent á að hafa samband við  þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma  433 1000 eða senda tölvupóst á netfangið akranes@akranes.is.

Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti á s.l. ári, fá til bráðabirgða sambærilega lækkun á árinu 2015 þar til álagning skatta vegna tekna ársins 2014 liggur fyrir. Verður þá afslátturinn endanlega ákvarðaður m.v. reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. Allar breytingar verða tilkynntar bréflega.

Ekki þarf að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi eigi lögheimili á Akranesi og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. b-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Bæjarstjórn mun ákveða tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2015. Þegar ákvörðunin liggur fyrir mun hún verða birt á hér á vef Akraneskaupstaðar.

Orkuveita Reykjavíkur annast álagningu og innheimtu vatnsgjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.

Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar veitir upplýsingar og annast breytingar varðandi álagningu fasteignaskatts, lóðarleigu og sorphirðugjalds. Upplýsinga má leita síma 433 1000 eða með tölvupóst á netfangið akranes@akranes.is.

Gjalddagar fasteignagjalda umfram kr. 12.000 fyrir árið 2015 eru:

15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september, 15. október. Eindagi reiknast 30 dögum eftir gjalddaga. Gjalddagi fasteignagjalda undir kr. 12.000 er 15. apríl.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00