Listgjörningurinn Geggjaðar peysur í Gallerí Bjarni Þór
29 október - 6 nóvember
Tónleikar og sýningar
Á Vökudögum er opnuð sýningin Geggjaðar peysur, já og þemað er peysur. Opnun verður laugardaginn 29. október frá kl. 12-16.
Harpa Hreinsdóttir sýnir peysur sem hún hefur hannað og prjónað. Sýningin hennar heitir "Geðveik peysa og 5 aðrar".
Bjarni Þór fygir í kjölfarið með málverk af peysum og prjóni.
Sýningin er opin á opnunartíma gallerísins sem er kl. 10-12 og 15-18 á virkum dögum og kl. 12-16 um helgar til 6. nóvember.