Leikskólinn Garðasel
1.des Hér er matseðill og dagatal fyrir desember 

26.nóv Myndir frá Lóninu komnar inn á síðuna þeirra 

24.nóv Slysavarnarfélag kvenna á Akranesi færði  börnunum í Garðaseli að gjöf endurskinsmerki sem voru ólík því sem hafa verið undanfarin ár. Nú voru þau í litum og ýmsum formum,t.d. froskar, draugar, hjörtu og fleira skemmtilegt. Við færum félaginu kærar þakkir fyrir góða og nytsama gjöf.

20.nóv Í dag kom Helga Steffensen með leiksýninguna Númi og höfuðin sjö en hún fjallar um hætturnar í umhverfinu og hvernig börn geta sem best varað sig á þeim. Þetta er í þriðja sinn á sex árum sem sýningin er í Garðaseli og alltaf jafn skemmtilegt að fá að sjá hann Núma eins og sést á myndunum sem teknar voru á sýningunni í dag. Sýningin var í boði foreldrafélagsins og þökkum við fyrir okkur. 

20.nóv Í morgun var Víkinni boðið á nemendasýningu á leiksýningu Grundaskóla, Vítahringur........ 

14.nóv Í dag fengum við fjölda góðra gesta til okkar í tilefni af Degi íslenskrar tungu sem er sunnudaginn 16. nóvember. Börnin höfðu undirbúið dagskrá sem þau fluttu fyrir foreldra, systkini, ömmur, afa og aðra gesti. Þau sungu, fóru með þulur og dönsuðu. Kaffi og heimabakað brauð var síðan í boði á eftir. Við þökkum öllum þeim fjölda sem tók þátt í deginum með okkur og vonum að allir hafi skemmt sér vel. Myndatakan í dag tókst ekki vel en foreldrar voru duglegir að taka myndir af börnunum. 

13.nóv Námsáætlun Holtsins er komin á síðuna þeirra 

13.nóv Í kvöld, fimmtudaginn 13. nóvember kl: 20.00 er á  vegum foreldrafélaga grunnskólanna  opinn fyrirlestur um ADHS (eða  athyglibrest

12. nóv  Foreldraskemmtun á föstudaginn í tilefni af Degi íslenskrar tungu

12. nóv Myndir frá Holti og  Lóni eru komnar inn á síðurnar þeirra

meira 

1.- 8. -15.-og 22. des
Aðventustundir á Skála 

10. des 
Aðventukaffi fyrir fjölskyldur barnanna kl: 14.00 -16.00

12. des
Rauður dagur
Leiksýningin Pönnukakan hennar Grýlu kl. 14.00

17.des
Aðventukaffi fyrir fjölskyldur barnanna kl: 14.00- 16.00

2. janúar 2009
Skipulagsdagur, leikskólinn er lokaðu
 

 

 

Leikskólinn Garðasel  Lerkigrund 9  300 Akranesi    s: 431-2004 / 431- 2034    Sími í Seli: 845-3304
 gardasel@akranes.is
myndir á síðu GrapichGarden
Umsjón og ábyrgð heimasíðu: Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri