ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Bæjarráð, fundur nr. 2958

Dags. 17.7.2007

2958. fundur bæjarráðs var haldinn í fundarherbergi bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18, þriðjudaginn 17.  júlí 2007 og hófst hann kl.12:00


 

Mættir voru:                  Karen Jónsdóttir,

                                    Gunnar Sigurðsson.

Varafulltrúi:                   Guðni Tryggvason.

Bæjarstjóri:                   Gísli S. Einarsson.

 

Auk þeirra sátu fundinn Hrönn Ríkharðsdóttir og Rún Halldórsdóttir bæjarfulltrúar, með vísan til 44. gr. samþykkja um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

                       

Fundarritari var Birna Guðmundsdóttir, fulltrúi.


 

Dagskrá:

 

1.    Fundargerðir nefnda, stjórna og ráða Akraneskaupstaðar:

1.1.      Fundargerð 20. fundar stjórnar Dvalarheimilisins Höfða frá 6. júlí 2007

Lögð fram.

 

2.    Fundargerðir, aðrar:

2.1.      Fundargerð 96. fundar framkvæmdanefndar mannvirkja frá 9. júlí 2007

2.2.      Fundargerð 97. fundar framkvæmdanefndar mannvirkja frá 11. júlí 2007

2.3.      Fundargerð 98. fundar framkvæmdanefndar mannvirkja frá 16. júlí 2007

Lagt fram.

Bæjarstjóra og framkvæmdanefnd falið að fylgja málinu eftir ( v. 16. júlí)

 

3.    Bréf Umhverfisstofnunar, dags. 11.7.2007, varðandi bréf frá bæjarráði Akraness vegna lyktarmengun frá fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi.

Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.

 

4.   Húsaleigusamningur Akraneskaupstaðar við Skátafélag Akraness, frá 15. júní 2007, varðandi leigu á Skátahúsinu Skagabraut 29.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

 

5.   Samkomulag Akraneskaupstaðar við Vegagerðina, dags. 12. júlí 2007, Varðandi lán vegna Esjubrautar – Kalmansbrautar  (gengur einnig undir nafninu Þjóðbraut.)

Bæjarráð samþykkir samkomulagið fyrir sitt leyti.

 

6.   Samkomulag Akraneskaupstaðar við Kalmansvík ehf.  frá 12. júní 2007, um heimild til að útfæra skipulag á allt að 7 ha. Landi við Kalmansvík.

Í aðalskipulagi Akraneskaupstaðar er ekki gert ráð fyrir sérstöku landsvæði íbúðabyggðar fyrir ákveðinn aldurshóp en í samkomulagi Akraneskaupstaðar og Kalmansvíkur ehf er gert ráð fyrir að sjö hektarar lands verði skipulagðir fyrir aldurshópinn 50 ára og eldri.

 

Sjö hektarar lands i rúmlega 6000 manna, landlitlu sveitarfélagi eru mikil gæði.  Þvi er það ekki góð stjórnsýsla að fulltrúar Akraneskaupstaðar vinni að ofangreindu skipulagi án undangenginnar efnislegrar umræðu innan Bæjarstjórnar Akraness ásamt faglegri umsögn skipulagsnefndar.

 

Ef slík umræða leiddi til þeirrar niðurstöðu að skynsamlegt væri að sjö hektarar lands eða tæplega 1000 manna byggð yrði skipulögð fyrir 50 ára og eldri ætti að sjálfsögðu að skilgreina slíkt verkefni með faglegum hætti og leita umsagna.  Efna til almennrar samkeppni á vegum Akraneskaupstaðar þar sem skipulags- og framkvæmdaaðilum gæfist kostur á að taka þátt í slíkri samkeppni og skila inn tillögum sínum til Bæjarstjórnar Akraness sem tæki málið til efnislegrar afgreiðslu að undangenginni umsögn skipulagsnefndar.

 

   Við undirrituð getum ekki fallist á það samkomulag sem hér er til afgreiðslu.  Málsmeðferðin brýtur gegn góðri stjórnsýslu og jafnræði borgaranna.  Óskum við því eftir að boðað verði til fundar i Bæjarstjórn Akraness eins fljótt og samþykktir Akraneskaupstaðar segja til um og málið þar tekið til efnislegrar umræðu.

 

 

            Undirritað

            Guðni Tryggvason

            Hrönn Ríkharðsdóttir

            Rún Halldórsdóttir

 

Meirihluti bæjarráðs vísar því algerlega á bug að í þessu máli hafi ekki verið unnið samkvæmt góðri stjórnsýslu. Málið var rætt í bæjarstjórn í bæjarráði 7. desember 2006, bæjarstjórn 12. desember 2006,  bæjarráði 24. maí 2007 og   bæjarstjórn 12. júní 2007. Fundargerð bæjarráðs nr. 2954 24.maí 2007 var meðal annars samþykkt að fela bæjarstjóra og bæjarritara að undirbúa samkomulag á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Á öllum þessum fundum hafa allir bæjarfulltrúar samþykkt málsmeðferð þessa því er bókun minnihlutans algjörlega vísað á bug.

 

Meirihluti bæjarráðs staðfestir samkomulagið og felur bæjarstjóra að rita bréf til Kalmansvíkur ehf. varðandi málið.

 

7.    Bréf félagsmálaráðuneytis, dags. 3.7.2007, varðandi uppgjör á framlagi vegna jöfnunar á tekjutapi sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti. Vísað til bréfs jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna frá 4. maí 2007.

Lagt fram.

 

8.   Bréf Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi til sveitarfélaga á Vesturlandi, dags. 3.7.2007, varðandi byggða- og sveitarstjórnarmál á erlendri grundu.

            Lagt fram.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 13:45.

 

 

 



Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008