Í dag voru opnuð tilboð í verkið: "Gangstéttir við Vesturgötu og Vogabraut, ýmsir verkliðir". Opnunin fór fram í fundarsal tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8. 4 verktakar sendu inn tilboð í verkið og var einn fulltrúi verktaka viðstaddur opnunina ásamt starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs.
Niðurstaða útboðsins fer til afgreiðslu bæjarráðs n.k. fimmtudag.
Sjá fundargerð opnunarinnar.