ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
9. febrúar 2010 18:24

Dýrfinna Torfadóttir er bæjarlistamaður Akraness 2010

Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og skartgripahönnuður var í dag útnefnd bæjarlistamaður Akraness árið 2010 við athöfn sem fram fór í bæjarþingsal Akraneskaupstaðar.

Síðastliðið haust lagði stjórn Akranesstofu til við bæjarstjórn Akraness að breytingar yrðu gerðar á tilhögun útnefningar á bæjarlistamanni Akraness þannig að bæjarlistamaður yrði útnefndur árlega í stað þess að útnefna einn á hverju kjörtímabili.  Bæjarstjórn samþykkti þessa tillögu stjórnar Akranesstofu.  Á  fundi sínum hinn 1. desember sl. samþykkti stjórn Akranesstofu einróma tillögu um útnefningu Dýrfinnu til bæjarlistamanns Akraness fyrir árið 2010.  Sú tillaga var samþykkt af bæjarráði Akraness hinn 3.desember síðast liðinn.

Í rökstuðningi stjórnar Akranesstofu fyrir útnefningu Dýrfinnu segir m.a.:  

„Stjórn Akranesstofu leggur til að Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður verði tilnefnd bæjarlistamaður Akraness árið 2010. Dýrfinna hefur vakið athygli víða um land fyrir skartgripi sína og margvíslega hönnun og hefur um leið vakið athygli á Akranesi með störfum sínum og listsköpun. Hún hefur m.a. skipulagt heimsóknir hópa gesta og ferðafólks til Akraness til að kynna þeim listsköpun og menningu á Akranesi og allt það sem bærinn hefur að bjóða.“ 

Dýrfinna Torfadóttir er fædd árið 1955 í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði og bjó þar eftir að námi lauk og þar til hún fluttist til Akraness haustið 2001.
Hún lærði fag sitt á Akureyri og í Valdres í Noregi og lauk meistaraprófi í gullsmíði árið 1983.  Hún opnaði vinnustofu og verslun sama ár á Ísafirði, sem enn er starfrækt, en þar er boðið upp á handunna skartgripi og gjafavöru.
Dýrfinna hefur sem skartgripahönnuður skapað sér sérstakan og persónulegan stíl sem einkennist af frumlegri og oft óhefðbundinni efnismerðferð og djarfri útfærslu. Með þessu hefur hún skipað sér í röð hinna eftirtektaverðustu gullsmiða og skartgripahönnuða á Íslandi.

Dýrfinna hefur tekið þátt í fjölda sýninga, bæði einkasýninga og samsýninga, og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar.  Meðal annars hlaut hún 1.verðlaun fyrir tískuskartgrip ársins árin 1997, 1998 og 1999. Hún er einnig fyrrverandi formaður Félags íslenskra gullsmiða.
Eins og áður segir hefur Dýrfinna verið ötull talsmaður Akraness og nota mætti orðið „áhugakynningarfulltrúi“ yfir þá vinnu sem hún hefur lagt í að kynna bæinn út á við.  Á hennar vegum hefur fjöldi fólks heimsótt Akranes og um leið kynnst öllu því sem Akranes hefur upp á bjóða.  

Dýrfinna starfrækir vinnustofu að Stillholti 16 - 18 á Akranesi.  Þar vinnur hún að skartgripagerð, skúlptúrgerð og gerð lágmynda svo eitthvað sé nefnt.

Fráfarandi bæjarlistamaður Akraness er Friðþjófur Helgason, myndsmiður.

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008