Umsjón með verkefninu er í höndum ráðgjafarfyrirtækisins Alta og skipulagsfulltrúa Akraneskaupstaðar. Á meðfylgjandi mynd eru börn úr Mýrdalshreppi sem þátt tóku í sambærilegu þingi fyrir nokkru. Hér á Akranesi verður þáttur barna og unglinga einnig stór hluti af starfinu því sjónarmið þeirra er að sjálfsögðu nauðsynlegt að fá með í umræðu um framtíðarskipulag sveitarfélagsins.