ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
7. júlí 2003 09:24

Tillaga að skipulagi liggur fyrir

Skipulags og umhverfisnefnd hefur borist tillaga Skagatorgs ehf. að skipulagi væntanlegs byggingasvæðis norðan Stillholts á Akranesi.  Í tillögunni er gert ráð fyrir tveimur lóðum fyrir 10 hæða íbúðablokkir auk kjallara og þakhæðar með samtals 84 íbúðum.  Fjölbýlishúsin eru staðsett á horni Stllholts og Kalmansbrautar annars vegar og á horni Stillholts og Dalbrautar hinsvegar.  Skipulagið gerir einnig ráð fyrir 6500 fermetra verslunarmiðstöð á einni hæð og 8 hæða þjónustubyggingu með skrifstofum, hóteli, veitingastöðum og heilsurækt. 

Byggingamagn norðan Stillholts er áætlað um 22.000 fermetrar og nýtingarhlutfall 0,7.  Í miðju skipulagssvæðisins verður útivistarsvæði ásamt bílastæðum en bílastæði verða einnig í kring um verslunarmiðstöðina.  
 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008