13. mars 2003 08:15
Viðtalstímar bæjarfulltrúa
Nú er tækifæri til að ræða bæjarmálin við bæjarfulltrúana
Bæjarfulltrúar verða til viðtals næstu þrjá mánudaga: 17. mars, 24. mars og 31. mars og er nú kjörið tækifæri fyrir bæjarbúa að ræða bæjarmálin við kjörna fulltrúa bæjarstjórnar Akraness.
Mánudaginn 17. mars n.k. milli kl. 17:00 - 19:00 verða bæjarfulltrúar Akraneslistans, þau Sveinn Kristinsson, Kristján Sveinsson og Ágústa Friðriksdóttir, til viðtals í bæjarþingsalnum og fundarherbergi 1 í Stjórnsýsluhúsinu, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Mánudaginn 24. mars n.k. milli kl. 17:00-19:00 verða bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þau Gunnar Sigurðsson, Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, Jón Gunnlaugsson og Þórður Þ. Þórðarson, til viðtals í bæjarþingsalnum og fundarherbergi 1 í Stjórnsýsluhúsinu, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Mánudaginn 31. mars n.k. milli kl. 17:00-19:00 verða bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins, þeir Guðmundur Páll Jónsson og Magnús Guðmundsson, til viðtals í bæjarþingsalnum og fundarherbergi 1 í Stjórnsýsluhúsinu, Stillholti 16-18, 3. hæð.