ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
26. febrúar 2003 15:39

Lúsafaraldur

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar bæjarins hafa undanfarið notað góðviðrisdaga til að úða grenitré í Garðalundi og við Stillholt gegn Sitgalús. Talsvert hefur borið á lús í vetur og farið að sjá á sumum trjám í bænum af þeim sökum. Mildir vetur, sem þessi, eru hagstæðir fyrir lúsina og hefur hún því dafnað vel.

Fyrstu einkenni á grenitrjám eru að nálar inni í  krónu fara að gulna og roðna. Lúsin er um 2 mm að stærð og heldur sig á neðra borði barrnálanna. Ef einkenna er vart og lús greinist á trjánum er rétt að úða þau á sama hátt og gert er á sumrin við blaðlús og maðki. Síðasti sitgalúsafaraldurinn var veturinn 1997. Þá fóru mörg tré í Garðalundi illa og þurfti að fella nokkur.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008