ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
29. janúar 2003 08:30

Karíus og Baktus í heimsókn í Grundaskóla

Karíus og Baktus í heimsókn í GrundaskólaÞriðjudaginn 28. janúar bauð foreldrafélag Garðasels og foreldrar 1. bekkjar í Grundaskóla til leiksýningar á sal Grundaskóla. Þeir félagar Karíus og Baktus komu í heimsókn og var komu þeirra beðið með eftirvæntingu. Tilhlökkun yngstu barnanna var mikil og þennan morgun voru tennurnar burstaðar sérstaklega vel.

 

Sýningin var hin besta skemmtun og börnin urðu ekki fyrir vonbrigðum með þá félaga. Þegar börnin svöruðu því játandi að hafa burstað tennurnar sínar vel vildu þeir ekki trúa því og þurftu að fá að skoða tennur sumra til að sannfærast. Kannski urðu þeir fyrir vonbrigðum -  því þarna var enga örðu að finna  og það þykir þeim ekki gott. 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008