ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
23. desember 2002 09:00

Enginn getur hjálpað öllum, en allir geta hjálpað einhverjum

Börnin í Garðseli gefa jólapakka"Enginn getur hjálpað öllum, en allir geta hjálpað einhverjum" hefur verið yfirskrift desembermánaðar í leikskólanum Garðaseli. Lögð hefur verið áhersla á hjálpsemi í allri sinni mynd.  Markmiðið hefur verið að  börnin upplifi þá ánægju sem fylgir því að hjálpa öðrum. Með umræðum um hvað hjálpsemi er og hvernig hægt er að hjálpa öðrum hefur verið reynt að stuðlað að samkennd með öðrum og gera börnunum grein fyrir að það eru til fátæk börn á Íslandi.   Ákveðið var að safna jólapökkum handa öðrum börnum og færa Mæðrastyrksnefnd til úthlutunar.  Fimmtudaginn 19. desember komu síðan  tveir fulltrúar nefndarinnar og tóku við jólagjafakassanum frá börnunum í Garðaseli. Óhætt er að segja að börnin hafi verið meira en tilbúin að leggja sitt af mörkum í þetta verkefni með góðri aðstoð  foreldra sinna.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008