Í anddyri Bókasafns Akraness liggur frammi kynningarefni frá Háskólanum á Akureyri. Háskólinn á Akureyri býður upp á metnaðarfullt fjarnám til fyrstu háskólagráðu um land allt. Fjarnámið fer fram í gegnum vefinn og með myndfundum, en að auki eru tölvusamskiptamiðlar nýttir til hins ítrasta.
Áhugasömum er bent á að koma í Bókasafnið og kynna sér um leið þá aðstöðu sem er í Námsverinu Svöfusal, en þar eru nemendur að ljúka 4. ári í hjúkrunarfæði frá Háskólanum á Akureyri.
Svöfusalur í Bókasafni Akraness er útibú frá Símenntunarmiðstöð Vesturlands og þar fer fram fjarnám frá Háskólanum á Akureyri.