29. maí 2006 08:20
Úrslit sveitarstjórnarkosninga á Akranesi
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna á Akranesi urðu þau sömu og fyrstu tölur gáfu til kynna, þ.e. meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar tapa báðir einum manni. Sjálfstæðisflokkur heldur fjórum mönnum í bæjarstjórn. Vinstri hreyfingin grænt framboð og Frjálslyndir og óháðir, náðu báðir inn manni í bæjarstjórn. Úrslit urðu þessi:
B listi 435 atkvæði eða 12,8% fylgi og einn mann: Guðmundur Páll Jónsson.
D listi Sjálfstæðisflokks 1254 atkvæði eða 37% fylgi og fjóra menn: Gunnar Sigurðsson, Sæmundur Víglundsson, Eydís Aðalbjörnsdóttur og Þórður Þ. Þórðarson.
F listi Frjálslyndra og óháðra 317 atkvæði eða 9,3% fylgi og einn mann; Karen Jónsdóttur.
S listi Samfylkingar og óháðra 821 atkvæði eða 24,2% fylgi og tvo menn, Sveinn Kristinsson og Hrönn Ríkharðsdóttir.
V listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs 473 atkvæði, 13,9% og einn mann; Rún Halldórsdóttur.