Umsóknarfrestur eftir byggingalóðum í 1. áfanga Skógahverfis er nú liðinn, en auglýst var eftir umsóknum í 61 einbýlishúsalóð og 11 par- og raðhúsalóðir, samtals 94 íbúðir. Lóðirnar voru auglýstar með fyrirvara um endanlega staðfestingu deiliskipulags. Mikill áhugi hefur reynst á þessum lóðum, en borist hafa um 200 umsóknir frá einstaklingum í einbýlishúsalóðir og um 60 umsóknir frá lögaðilum í par- og raðhúsalóðirnar. Gert er ráð fyrir að bæjarráð Akraness fjalli um umsóknirnar á fundi sínum á n.k. fimmtudag og dragi m.a. úr hópi umsækjenda útdráttarröð sem heimili viðkomandi einstaklingum að velja sér einbýlishúsalóð sem laus er.